Margir húseigendur leggja sérstakan metnað í að skreyta hús sín, sjálfum sér og nágrönnum til ánægju í skammdeginu. Nú óskar bæjarstjórn eftir tilnefningum fyrir jólahús ársins 2009. Tilnefningum er hægt að skila inn á bæjarskrifstofur, eða í tölvupósti á skrifstofa@vogar.is fyrir 14. desember næstkomandi. Fylgist með fréttum og viðburðum um aðventuna á www.vogar.is
Í ár eins og fyrri ár verður veitt viðurkenning fyrir Jólahús Voga og fallega skreytta húsaröð.