Jólaball kvenfélagsins Fjólu 27. desember

Jólaball kvenfélagsins Fjólu verður haldið laugardaginn 27. desember í Tjarnarsalnum við skólann og hefst kl 14:00. Hver veit nema að einhverjir jólasveinar ofan úr fjöllum kíki og heilsi uppá börnin og hafi glaðning með sér. Torfi Gunnþórsson sér um að halda uppi fjörinu með dansi í kringum jólatréð, söngi og skemmtilegum leikjum.

Frítt er inn á jólaballið í boði bæjarstjórnar.

Kvenfélagið Fjóla