Jólaball í Tjarnarsal laugardaginn 27. desember

Jólaball verður haldið laugardaginn 27. desember í Tjarnarsal og hefst kl 14:00.

Hver veit nema að jólasveinninn kíki við og heilsi upp á börnin.

Lifandi tónlist og dansað í kringum jólatréð.

Frítt er inn á jólaballið.

Heitt súkkulaði og smákökur í boði

Jólakveðja,

Kvenfélagið Fjóla, Foreldrafélag leikskólans, Lions, Björgunarsveitin Skyggnir og Sveitarfélagið Vogar