ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS 2018

Sveitarfélagið Vogar óskar eftir tilnefningum á íþróttamanni ársins fyrir árið 2018.
Íþróttamaður ársins verður að vera í íþróttafélagi innan Íþróttasambands Íslands og vera búsettur í Vogum.  Tilnefndir íþróttamenn skulu vera orðnir 16.ára eða eldri. 
Heimilt er að nefna ungling 14-16. ára sem keppir í flokki fullorðinna og er að ná það góðum árangri  að hann teljist á meðal þeirra bestu í sinni íþróttagrein.
Allar tilnefningar skulu vera rökstuddar. Íþróttamaður ársins í Vogum hlýtur við útnefningu farandbikar til eins árs og bikar til eignar.
Val á íþróttamanni ársins verður tilkynnt á Gamlársdag í Álfagerði kl. 11:00.
Tilnefningar ásamt rökstuðningi  sendast á skrifstofa@vogar.is eða í lokuðu umslagi á bæjarskrifstofu fyrir 17. desember.