ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS 2015

Sveitarfélagið Vogar óskar eftir tilnefningum á íþróttamanni ársins fyrir árið 2015. Íþróttamaður ársins verður að vera í íþróttafélagi innan Íþróttasambands Íslands og vera búsettur í Vogum. Tilnefndir íþróttamenn skulu vera 12 ára á árinu eða eldri. Allar tilnefningar skulu vera rökstuddar.

Íþróttamaður ársins í Vogum hlýtur við útnefningu farandbikar til eins árs og bikar til eignar.

Val á íþróttamanni ársins verður tilkynnt á þrettándanum þann 6. janúar 2016.

Tilnefningar ásamt rökstuðningi sendast á stefan@vogar.is eða í lokuðu umslagi í íþrótta – eða félagsmiðstöð eigi síðar en 31. desember nk.