Íþróttamaður ársins 2014 - Tilnefningar óskast

Sveitarfélagið Vogar óskar eftir tilnefningum á
íþróttamanni ársins fyrir árið 2014.

Íþróttamaður ársins verður að vera í íþróttafélagi
innan Íþróttasambands Íslands og vera búsettur í
Vogum. Tilnefndir íþróttamenn skulu vera 12 ára
á árinu eða eldri. Allar tilnefningar skulu vera
rökstuddar.

Íþróttamaður ársins í Vogum hlýtur
við útnefningu farandbikar til eins árs og bikar til
eignar.

Val á íþróttamanni ársins verður tilkynnt
á þrettándanum þann 6.janúar 2015.

Tilnefningar ásamt rökstuðningi sendast á
stefan@vogar.is eða í lokuðu umslagi í Íþrótta –
og félagsmiðstöð í síðasta lagi 19. desember.

Frístunda- og menningarfulltrúi