Íþróttamaður ársins 2013

Sveitarfélagið Vogar óskar eftir tilnefningum á íþróttamanni ársins fyrir árið 2013.

Íþróttamaður ársins verður að vera í íþróttafélagi innan Íþróttasambands Íslands og vera búsettur í Vogum. Tilnefndir íþróttamenn skulu vera 12 ára á árinu eða eldri. Allar tilnefningar skulu vera rökstuddar. Íþróttamaður ársins í Vogum hlýtur við útnefningu farandbikar til eins árs og bikar til eignar. Val á íþróttamanni ársins verður tilkynnt á þrettándanum þann 6.janúar 2014.

Tilnefningar ásamt rökstuðningi sendast á stefan@vogar.is eða í lokuðu umslagi í íþrótta – og félagsmiðstöð í síðasta lagi 19.desember.