Íþróttamaður ársins 2010 í Vogum - Tilnefningar óskast

Frístunda- og menningarnefnd Voga óskar eftir tilnefningum til íþróttamanns ársins 2010 í Vogum.

Auk íþróttafélaga í sveitarfélaginu er einstaklingum heimilt að tilnefna íþróttamann.

Í reglugerð um íþróttamann ársins segir m.a.:
Tilnefndur íþróttamaður þarf að vera í félagi innan Íþrótta- og ólympíusambands Íslands og vera búsettur í Sveitarfélaginu Vogum. Íþróttamaður þarf einnig að vera 12 ára eða eldri.

Tilnefningar óskast sendar, ásamt rökstuðningi, á netfangið stefan@vogar.is í síðasta lagi þriðjudaginn 28. febrúar 2011.

Frístunda- og menningarfulltrúi Voga