Íþróttamaður ársins 2008

Sveitarfélagið Vogar

Óskar eftir tilnefningum á íþróttamanni ársins fyrir árið 2008.

Íþróttamaður ársins verður að vera í íþróttafélagi innan Íþróttasambands Íslands og vera búsettur í Vogum.  Tilnefndir íþróttamenn skulu vera 12 ára á árinu eða eldri.  Allar tillögur skulu vera rökstuddar.  Íþróttamaður ársins í Vogum hlýtur við útnefningu farandbikar til eins árs og bikar til eignar. Val á íþróttamanni ársins verður tilkynnt á árshátíð Stóru- Vogaskóla þann 2. apríl næst komandi.
Tilnefningar sendist á tinna@vogar.is eða í lokuðu umslagi í íþrótta – og félagsmiðstöð í síðasta lagi 29. mars.

Frístunda – og menningarnefnd