Iðnaðarlóð laus til umsóknar

Sveitarfélagið Vogar auglýsir lausa til umsóknar 4.995 m2 lóð í nýju iðnaðarhverfi við Vogaafleggjara. Lóðin er nr. 5 við Heiðarholt og er byggingarhæf.

Umsækjendur skulu í umsókn greina frá þeirri starfsemi sem fyrirhuguð er, og leggja fram tilboð í byggingarétt á lóðinni. Gatnagerðargjöld reiknast ofan á byggingarétt, skv. gjaldskrá Sveitarfélagsins Voga.

Frestur til að skila inn umsóknum er til 21. júní 2007.

Nánari upplýsingar fást á bæjarskrifstofum í síma 424- 6660 og á heimasíðunni www.vogar.is

bæjarstjóri