Íbúðir til leigu í Álfagerði

Sveitarfélagið Vogar auglýsir lausar til umsóknar tvær nýjar íbúðir fyrir eldri borgara í Álfagerði.

Í Álfagerði eru alls þrettán íbúðir fyrir 67 ára og eldri og samtengd þjónustumiðstöð. Íbúðirnar eru hvor um sig 46 m2 að stærð.

Umsækjendur skulu vera með skráð lögheimili í Sveitarfélaginu Vogum og uppfylla skilyrði um eigna- og tekjumörk í samræmi við reglugerð um lánveitingar til leiguíbúða nr. 873/2001.

Ef ekki berast umsóknir frá aðilum sem uppfylla ofangreind skilyrði verða aðrar teknar til greina.

Nánari upplýsingar í síma 440-6200.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga.