Íbúðalánasjóður auglýsir íbúðir til leigu

Íbúðalánasjóður hefur auglýst tvær íbúðir í sveitarfélaginu til leigu. Um er að ræða 3ja herbergja íbúð í Heiðargerði 5 (fjölbýlishús) og 4 herbergja íbúð í Heiðardal 1 (raðhús). Eignirnar eru auglýstar á  http://fasteignir.visir.is/  og http://mbl.is/leiga/ og þar er hægt að sækja um þær með því að senda inn umsókn á leiga@ils.is og þar á eingöngu að setja nafn eignar í subject, nafn umsækjanda,kt. og símanúmer í tölvupóstinn. Eftir 21. apríl er svo unnið úr umsóknum.
Á meðan eignirnar eru auglýstar er ekki hægt að skoða þær nema á þeim myndum sem eru í auglýsingunni á netinu en að sjálfsögðu fær fólk að skoða eignina ef það er dregið út og hafa þá kost á að afþakka eignin ef hún hentar ekki.

Hér má sjá úthlutunarreglur sjóðsins : http://www.ils.is/einstaklingar/ibudir-til-leigu/uthlutunarreglur-leiguibuda/