Við viljum vekja athygli íbúa sveitarfélgsins á rafrænni íbúagátt. Á heimasíðu sveitarfélagsins www.vogar.is er hlekkur á íbúagáttina, unnt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða íslykli. Íbúagáttina má nýta m.a. til að senda sveitarfélaginu erindi, sækja um ýmsa þjónustu sem í boði er, auk þess sem nú er unnt að skoða álagningarseðla fasteignagjalda. Starfsfólk bæjarskrifstofu mun áfram vinna að því að þróa íbúagáttina og bæta við fleiri þjónustuþáttum eftir því sem tilefni er til. Við hvetjum alla íbúa til að nýta sér íbúagáttina og þá þjónustu sem þar er í boði.