Íbúafundur um fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Voga fyrir árið 2009

Boðað er til íbúafundar í Tjarnarsal þriðjudaginn 13. janúar kl. 17.30.

Á fundinum verður tillaga að fjárhagsáætlun ársins 2009 kynnt og rædd, ásamt tillögu um að verðtrygging höfuðstóls Framfarasjóðs Sveitarfélagsins Voga verði felld niður.

Dagskrá
• Bæjarstjóri kynnir tillögu að fjárhagsáætlun ársins 2009
• Bæjarstjóri kynnir tillögu um að verðtrygging höfuðstóls Framfarasjóðs Sveitarfélagsins Voga verði felld niður fjárhagsárin 2008 og 2009. Auk þess verður kynnt álit sérfróðs aðila í samræmi við 5. gr. samþykktar um Framfarasjóð Sveitarfélagsins Voga.
• Fyrirspurnir og umræður

Íbúar eru hvattir til að mæta á fundinn

Bæjarstjóri.

Tillaga um að nýta vexti og verðbætur á árinu 2009.
Álit KPMG á tillögunni.
Samþykkt um Framfarasjóð Sveitarfélagsins Voga