ÍBÚAFUNDUR Í TJARNARSAL

Bæjarstjórn boðar til almenns íbúafundar í Tjarnarsal fimmtudaginn 5. desember n.k., kl. 19:30.

Á fundinum verður fjárhagsáætlun ársins 2014 kynnt, sem og þriggja ára áætlun 2015 – 2017.

Fjárhagsáætlunin var tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn þann 29. nóvember s.l., síðari umræða verður síðar í þessum mánuði.

 

Íbúar sveitarfélagsins eru hvattir til að mæta og fræðast um fjárhagsáætlunina.

 

Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri