Íbúafundur fimmtudaginn 10. maí 2012

Boðað er til almenns íbúafundar í Tjarnarsal fimmtudaginn 10. maí 2012 kl. 17.30.

Á fundinum verður ársreikningur ársins 2011 kynntur, ásamt tillögu um að ráðstafa fjármagni úr Framfarasjóði Sveitarfélagsins Voga til kaupa á hlut úr landi Vogajarða.

Dagskrá:

  • Bæjarstjóri kynnir ársreikning 2011
  • Bæjarstjóri kynnir tillögu um að kaup sveitarfélagsins Voga á hluta úr Vogajörðum verði fjármagnað með framlagi úr sjóðnum.  Auk þess verður kynnt álit sérfróðs aðila í samræmi við 5.gr.samþykktar um Framfarasjóð Sveitarfélagsins Voga.
  • Bæjarfulltrúar sitja fyrir svörum um málefni sveitarfélagsins. Fyrirspurnir og umræður.



Ásgeir Eiríksson,
bæjarstjóri