ÍBÚAFUNDUR

Boðað er til almenns íbúafundar í Álfagerði, miðvikudaginn 24. apríl n.k. kl. 19:30.

Til umfjöllunar er tillaga um að fjármagna kaup á fasteignum af Eignarhaldsfélaginu Fasteign ehf með framlagi úr Framfarasjóði sveitarfélagsins. Einnig verður lögð fram tillaga um að veita fé til rannsókna á hagkvæmni þess að leggja hitaveitu á Vatnsleysuströnd.

Reglubundinn fundur í bæjarstjórn verður þennan sama dag kl. 18:00, einnig haldinn í Álfagerði. Athygli er vakin á því að fundir bæjarstjórnar eru opnir almenningi. Á þeim fundi verður m.a. ársreikningur sveitarfélagins tekinn til fyrri umræðu.

Ásgeir Eiríksson
Bæjarstjóri