Hvatningarverðlaun 2018

Óskum eftir tilnefningum á íþróttamanni sem er á aldrinum 12-16. ára og hlýtur hvatningarverðlaun ársins 2018.
Verðlaun þessi eru veitt fyrir íþróttamann sem er áhugasamur, með góða ástundun, sýnir góða hegðun innan vallar sem utan, góður félagi og telst vera góð fyrirmynd annarra unglinga.
Hvatningarverðlaun verða afhent á Gamlársdag í Álfagerði kl. 11:00 og skulu tilnefningar ásamt rökstuðningi  sendast á
skrifstofa@vogar.is eða í lokuðu umslagi á bæjarskrifstofu fyrir 17. desember.