Hreyfivika UMFÍ 23. - 29. maí 2016

Í tilefni af „Hreyfiviku UMFÍ“ hafa fjölmörg sveitarfélög á landinu skorað á hvert annað í sundkeppni. Keppnin hófst í gær og stendur til 29.maí. 39 sveitarfélög eru skráð í keppnina og eftir fyrsta daginn eru Vogar í 15. sæti.

Komdu og vertu með og taktu þátt fyrir þitt sveitarfélag!

Þátttakendur skrá á eyðublað sem liggur frammi í afgreiðslu sundlaugar hversu marga metra er synt á hverjum degi.

Sundæfingar og skólasund telst ekki með.

Skráðu þínar ferðir og taktu þátt fyrir þitt sveitarfélag.