Hjólað í vinnuna – Heilsuleikskólinn Suðurvellir í fyrsta sæti!

Frá árinu 2003 hefur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands staðið að því að efla hreyfingu og starfsanda á vinnustöðum með heilsu- og hvatningarverkefninu „Hjólað í vinnuna".
Meginmarkmið verkefnisins er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Þátttakendur voru hvattir til þess að hjóla, ganga, hlaupa eða nýta almenningssamgöngur til og frá vinnu dagana 7. – 27. maí.
Heilsuleikskólinn Suðurvellir tók þátt nú líkt og undanfarin sex ár og gaman er að segja frá því að starfsmenn lentu í fyrsta sæti í vinnustaðakeppni annað árið í röð.