Heitur matur í Álfagerði

Mánudaginn  21. janúar 2013 mun sveitarfélagið taka upp nýja þjónustu við íbúa sveitarfélagsins 67 ára og eldri. Framvegis verður hægt að panta heitan mat sem er borinn fram í Álfagerði í hádeginu mánudaga – föstudaga. Sama verð er á máltíð og fyrir heimsendan mat í bökkum, kr. 610,- máltíðin.

Umsjón með framkvæmdinni hefur Elsa Lára Arnardóttir, umsjónarmaður með félagsstarfi aldraðra. Elsa Lára er með viðveru í Álfagerði á virkum dögum kl. 11 – 17, síminn þar er 440 6228 og 440 6229. Þeir sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru beðnir að hafa samband við Elsu Láru sem veitir allar nánari upplýsingar og tekur á móti pöntunum fyrir þjónustuna.