Heimir landsliðsþjálfari kom í heimsókn.

Knattspyrnudeild Þróttar þakkar Heimi landsliðsþjálfara kærlega fyrir að gefa sér tíma þrátt fyrir mikið annríki fyrir landsleikinn nk föstudag. Heimir heimsótti okkur á þriðjudaginn, gaf sér góðan tíma til að tala við krakkana, sjórnaði æfingum og horfði þess á milli. Heimir var hinn hressasti og við Þróttarar erum stútfullir af þakklæti enda gaf Heimir mikið af sér og gaf mörg brosin og minningu sem mun lifa lengi hjá krökkunum.

Hér er að finna frétt á vf.is um heimsóknina http://www.vf.is/ithrottir/heimir-hallgrims-thjalfadi-throttara-i-dag/66653