Heimaleikur hjá Þrótti á laugardaginn

Meistaraflokkur Þróttar í knattspyrnu tekur á móti liði K.B. (Knattspyrnufélag Breiðholts) í 3. deildinni á laugardaginn. Leikurinn fer fram í Nesbyggðarvellinum í Vogum og hefst kl. 14:00. Þróttarar hafa sigrað í síðustu tveimur leikjum sínum í deildinni og gætu stimplað sig vel inn í toppbaráttu B-riðils 3. deildar með sigri á K.B.

Það verður mikið fjör í kringum leikinn á laugardaginn. Nesbyggð býður á völlinn og í grill hálftíma fyrir leik. Allir Þróttarar nær og fjær eru hvattir til að kíkja við, fá sér bita fyrir leik og hvetja síðan sína menn til sigurs.

ÁFRAM ÞRÓTTUR!