Heilsu-og forvarnarvika, Dagskrá miðvikudag.

Miðvikudagur
Þróttur stendur fyrir opinni fótbolta æfingu fyrir kvk í Vogum í íþróttamiðstöðinni. Þróttur í samstarfi við félagsmiðstöðina ætlar að prufa setja af stað verkefni til að tengja þá sem hafa áhuga aftur inn í íþróttir. Markhópurinn er kvk á öllum aldri og markmiðið er að fá þær sem hafa áhuga á    að spila/leika sér í fótbolta til að koma án þess að þurfa fara æfa tækni, þrek eða styrk. Þetta á að vera skemmtilegt og uppörvandi og hvetjum við allar konur í Vogunum til að koma og taka þátt í vetur.