Heilsu og forvarnarvika. Dagskrá föstudags

Föstudagur
Opin júdóæfing kl. 17:00 fyrir 10 ára og yngri og 18:00 fyrir 10 ára og eldri.
Reykjavík Ragnarök ætlar að koma og vera með kennslu í quidditch fyrir krakkana í félagsmiðstöðinni frá kl. 20:00 – 22:00.
Quidditch er galdramannaíþrótt úr bókum J. K. Rowling sem fjalla um Harry Potter. Íþróttin hefur náð miklum vinsældum og hefur íslenska liðið til dæmis verið að keppa á norðurlandamótum og heimsmeistaramótum með góðum árangri. Reykjavík Ragnarök munu koma með allt sem til þarf til að prufa þessa Íþrótt og hvetjum við alla í 8. – 10. Bekk til að koma og taka þátt.