Heiðargerði 23a er jólahúsið í Vogum 2012

Bæjarráð ákvað á fundi sínum þann 19. desember 2012 að Heiðargerði 23a sé jólahúsið í ár. Húsið var valið eftir að auglýst hafði verið eftir tilnefningum og ábendingum. Húsið er smekklega skreytt í alla staði og prýði í sveitarfélaginu. Það er Orkusalan sem gefur verðlaunin að þessu sinni.

Við óskum Láru, Jóni Dofra og fjölskyldu til hamingju með tilnefninguna!

Heiðargerði 23a er Jólahúsið 2012