Haustmarkaður Hlöðunnar laugardaginn 17. september

Haustmarkaður Hlöðunnar í Vogum á Vatnsleysuströnd verður haldinn í annað sinn laugardaginn 17. september frá kl. 12-18.

Laugardaginn 17. september bjóða íbúar Voga og Vatnsleysustrandar grönnum sínum að njóta haustuppskerunnar með sér.
Meðal þess sem verður á boðstólum er ýmislegt matarkyns svo sem sultur, rúgbrauð og nýupptekið grænmeti. Einnig verða til sölu húfur, treflar og prjónadúkkur ásamt öðru handverki.

Á markaðnum verður keppt um bragðbestu sultuna og eru gestir hvattir til þess að skrá sig í keppnina á netfangið sveitamarkadur@hladan.org  

Svokallað „skiptiborð“ verður á markaðnum þar sem hægt verður að skipta á varningi s.s. grænmeti, sultutaui, handverki eða lopasokkum.


Boðið verður upp á kaffi og heitt súkkulaði á sanngjörnu verði.

Landnámsgeitur- og hænur koma í heimsókn.

Markaðurinn er haldinn í hlöðu sem stendur við Egilsgötu 8 eða bæinn Minni-Voga í Vogum á Vatnsleysuströnd og hefst hann stundvíslega kl. 12  laugardaginn 17. september.

Allar nánari upplýsingar má nálgast á vef Hlöðunnar www.hladan.org