Hátíðarhöld 17. júní í boði Kvenfélagsins Fjólu

Kvenfélagið Fjóla 90 ára

Þér er boðið í veislu!

Þann 5. júlí næst komandi fagnar kvenfélagið Fjóla 90 ára afmæli sínu.

Af því tilefni er þér boðið í veislu í Tjarnarsal á sjálfan þjóðhátíðardaginn, 17. júní.

Við ætlum að ganga saman frá íþróttahúsinu kl 13:30 og enda í Tjarnarsal.

Þar verður boðið upp á kaffi og kökur,  hoppukastala, þrautabraut og vatnabolta. Einnig verða keppnir og leikir fyrir krakkana og allir sem taka þátt fá verðlaun. Boðið verður upp á Candy floss, krap og popp. Einnig verða gefins blöðrur og nammi fyrir krakkana. Allt þetta verður í boði kvenfélagsins frá kl 14:00-17:00 þennan dag.

Komum saman og eigum góðan dag í boði Kvenfélagsins Fjólu.