Græn og væn til framtíðar

Miðvikudaginn 10. október er boðað til hugarflugsfundar um umhverfismál í sveitarfélaginu Vogum.
Fundurinn verður haldinn í Álfagerði og hefst kl. 20.
Markmið fundarins er að fara á flug í hugmyndavinnu um hvernig við viljum sjá umhverfismálin í samfélaginu, hvar tækifærin liggja og hvernig við virkjum allan almenning til þátttöku.

Hlökkum til að sjá sem flesta í skemmtilegt spjall