Göngustígar

Framkvæmdir eru hafnar við gerð göngustíga og gangstétta sem boðnar voru út í haust. M.a.  verður gerður göngustígur meðfram sjónum frá enda göngustígs við gamla björgunarsveitarhúsið og að fiskverkunarhúsum. Það er fyrirtækið Rekan sem sér um framkvæmdir og á þeim að vera lokið í nóvember.