Golfnámskeið í júní

Félagsmiðstöðin og Golfklúbbur Vatnsleysustrandar munu bjóða uppá  golfnámskeið í sumar. Kennt verður í tveimur hópum, yngri (4.-6. bekk) og eldri (7.-10. bekk).  Námskeiðið verður tvisvar í viku í 3 vikur, og verður námskeiðið eftirtalda daga: 13. 14. 19. 22. 25. og 26. júní.
Yngri hópurinn verður fyrir hádegi og eldri hópurinn eftir kl 16:00 á daginn. 

Kennd verða réttu golfhandtökin, pútt, einbeiting, langskot og margt fleira. Námskeiðið kostar 3000kr
Leiðbeinandi á námskeiðinu er enginn annar en golf goðið Ragnar Davíð Riordan.
Skráning er hafin í félagsmiðstöðinni í síma 424-6882.

Áhugasamir skráið ykkur sem fyrst, aðeins eru 10 pláss laus á hvort námskeiðið