Golfnámskeið á vegum GVS

Boðið er upp á golfnámskeið fyrir börn og unglinga 8 ára og eldri á svæði Golfklúbbs Vatnsleysustrandar við Kálfatjörn 4.-14. ágúst 2009. Námskeiðið fer fram á morgnana á virkum dögum og stendur yfir í tvær vikur. Boðið er upp á akstur frá Íþróttamiðstöðinni út á golfvöll fyrir þá sem sækja námskeiðið. Vanur golfkennari mun verða leiðbeinandi á námskeiðinu. Þátttökugjald fyrir námskeiðið er kr. 10.000,-.
Skráning fer fram í skála GVS í síma 424-6529.