Glaðheimar rifnir?

Í tölublaði Víkurfrétta í gær kom fram að rífa ætti samkomuhúsið Glaðheima. Þessi frétt er á misskilningi byggð. Ekki stendur til að rífa Glaðheima að svo stöddu. Hins vegar stendur til að rífa hús það sem hýst hefur starfsemi unglinga og frístundaskólans. Það hús víkur fyrir þriðja fjölbýlishúsinu sem rís við Heiðargerði. Starfsemi félagsstarfs unglinganna og frístundaskólinn mun hins vegar flytja í Glaðheima, þar til starfsemin flytur í varanlegt húsnæði í viðbyggingu við Íþróttamiðstöðina.