Gjaldskylda tekin upp á endurvinnslustöðvum

Gjaldskylda tekin upp á endurvinnslustöðvum

Gjaldskrárbreytingar hjá Kölku 1. janúar 2012

 

Hjá Kölku - Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf. hefur verið tekin ákvörðun um breytingar á gjaldskrám fyrirtækisins sem taka gildi hinn 1. janúar 2012. Endurskoðun á gjaldskrám fyrirtækisins voru síðast gerðar hinn 1. febrúar 2010. Breytingar taka m.a. mið af þróun verðlags og einnig hafa kostnaðaráhrif mismunandi tegunda úrgangsefna verið endurmetin. Gjaldskrám Kölku er nú skipt í fjóra mismunandi flokka sem eru eftirfarandi:

·         Gjaldskrá fyrir stofnanir og fyrirtæki

·         Gjaldskrá á endurvinnslustöðvum Kölku í Vogum, Grindavík og Helguvík

·         Almenn gjaldskrá fyrir spilliefni

·         Gjaldskrá fyrir spilliefni og önnur skilgreind efni frá verktökum Úrvinnslusjóðs

Gjaldskrárnar eru birtar á heimasíðu fyrirtækisins, www.kalka.is.

 

Gjaldskylda á endurvinnslustöðvum

Frá og með 1. janúar 2012 verður tekin upp gjaldskylda á endurvinnslustöðvum Kölku í Vogum, Grindavík og Helguvík fyrir tiltekin úrgangsefni frá heimilum. Gert er ráð fyrir að greitt verði með greiðslukortum. Áfram verða fjölmargar tilgreindar tegundir úrgangsefna undanþegnar gjaldskyldu eins og verið hefur.

Með þessari breytingu verður rekstraraðilum leyft að losa sig við úrgangsefni í takmörkuðu magni á endurvinnslustöðvunum.

Vakin er athygli á því að allur úrgangur sem berst á endurvinnslustöðvar Kölku með bifreiðum sem bera rauðar númeraplötur og/eða eru merktar fyrirtækjum, er litið á sem gjaldskyldan rekstrarúrgang. Úrgangur frá fyrirtækjum sem að mati starfsmanna Kölku er ekki móttökuhæfur á endurvinnslustöð, verður vísað til móttökustöðvar í Helguvík.

 

Gjaldtaka á endurvinnslustöðvunum verður samkvæmt rúmmáli og í gjaldskránni er  skilgreint hvaða úrgangsefni eru gjaldskyld og hvaða úrgangsefni eru án gjaldskyldu fyrir heimili. Einnig má sjá gjaldskyldu og undanþágur fyrir rekstraraðila. Fyrir rekstraraðila vísast að öðru leyti til gjaldskrár fyrir stofnanir og fyrirtæki.

 

    Gjaldskylt frá      Gjaldskylt frá                                                                                                                                                      

        heimilum        rekstraraðilum

Timbur, allar tegundir þ.m.t. trékassar, vörubretti, húsgögn, innréttingar, gólfefni, o.þ.h.

 

 

Grófur og blandaður úrgangur vegna framkvæmda, s.s. gler, steinefni,  múrbrot, salerni, handlaugar, baðkör, flísar o.þ.h.

 

 

Blandaður úrgangur vegna bifreiðaviðgerða

Blandaður úrgangur vegna húsdýrahalds

Blandaður heimilisúrgangurí eðlilegu magni og skyldur úrgangur

Nei

Garða- og gróðurúrgangur s.s. gras, trjágreinar o.þ.h.

Nei

Málmar, allar tegundir

Nei

Nei

Hjólbarðar, allar stærðir

Nei

Nei

Bylgjupappi, blöð, tímarit o.þ.h.

Nei

Nei

Raftæki af ýmsum gerðum s.s. þvottavélar, þurrkarar, eldavélar, ísskápar, örbylgjuofnar, tölvur, sjónvörp o.þ.h.