Gítarnámskeið.

fyrir 5.-10.bekk
Langar þig að læra að spila á gítar?
Nú er tækifærið.
Boðið verður upp á námskeið fyrir byrjendur. Á námskeiðinu verða kenndir algengustu hljómar á gítar, hvernig á að stilla hljóðfærið og blús/rokk rytmar.
Námskeiðið tekur átta vikur, ein klukkustund í senn og verður kennslan á mánudögum eftir hádegi, fyrsti tími 17.janúar. Um hópkennslu er að ræða, 10-15 nemendur í hóp. Námskeiðsgjald er 15.000 kr.
Upplýsingar um kennarann:
Hannes Guðrúnarson starfar sem gítarkennari við Tónlistarskóla Kópavogs og sem sjálfstætt starfandi tónlistarmaður.
Hann hefur haldið fjölda námskeiða í gítarleik hjá KFUM og K, ÆSKR og sinnt stundakennslu í KHÍ.

Skráning fer fram á skrifstofu skólans í síma 440-6250, einnig er hægt að senda tölvupóst á: ritari@vogar.is
Tónlistarskóli Stóru-Vogaskóla