Gatnalýsing – breytt fyrirkomulag

Sveitarfélagið hefur tekið að sér eftirlit með lýsingu á götum og stígum sveitarfélagsins, í þeirri viðleitni að hagræða og spara í rekstrinum.
Í þessu skyni óskar sveitarfélagið eftir samstarfi við íbúana, þess efnis að þeir sendi okkur ábendingu um bilaðar perur í ljósastaurum. Við munun safna ábendingunum saman og kalla til viðhaldsaðila til að sinna peruskiptunum.

Vinsamlegast sendið ábendingarnar á netfangið skrifstofa@vogar.is

Með von um jákvæð viðbrögð og gott samstarf

Umhverfis- og eignadeild.