Ganga frá Kálfatjarnarkirkju um Þórustaðastíg

Menningar- og sögutengd gönguferð verður sunnudaginn 12. ágúst kl. 11 í boði Sveitarfélagsins Voga og í samvinnu við sjf menningarmiðlun og FERLIR. Gangan hefst við Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysuströnd. Genginn verður hringur frá Kálfatjörn um Þórustaðastíg (gömul þjóðleið), að Þórustaðaborg og Staðarborg sem eru gamlar fjárborgir og endað á Kálfatjörn. Svæðið býr yfir minjum og mögnuðum sögum og fróðleik sem leiðsögumaður Reykjaness munu miðla á leiðinni. Reynt verður að gera gönguna bæði skemmtilega og fræðandi fyrir alla fjölskylduna. Áætlað er að gangan taki  ca. 2-3 klst. með stoppum. Auðveld leið en gott er að vera vel skóaður. Allir á eigin ábyrgð. Í lok göngu verður Minjanefnd Vatnsleysustrandar með opið hús í Skjaldbreið, gömlu hlöðunni og Norðurkoti, gamla skólahúsinu sem er verið að gera upp á Kálfatjörn. Minjanefndin verður jafnframt með kaffisölu á staðnum.
 
Gangan er önnur ferð af fimm menningar- og sögutengdum gönguferðum um hluta af gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskaganum sem farnar verða á tímabilinu frá 6.ágúst – 2. sept. ´07. Boðið er upp á  þátttökuseðil þar sem göngufólk safnar stimplum fyrir hverja ferð. Þegar búið verður að fara 3 - 5 gönguleiðir verður dregið úr seðlum og einhver heppinn fær góð gönguverðlaun. Dregið verður eftir síðustu gönguna. Þátttakendur eru beðnir um að muna efti að taka þátttökuseðla með í ferðir.

Sigrún Jónsd. Franklín
leiðsögumaður Reykjaness
sjf menningarmiðlun
sjf@internet.is/6918828