Gamla bensínstöðin og þvottaplanið við Heiðargerði rifið í dag 15. september.
Var það gert til að rýma fyrir nýju fjölbýlishúsi.
Vel hefur gengið að selja íbúðirnar í fjölbýlishúsum við Heiðargerði
og þessvegna var byggingu þriðja fjölbýlishússins flýtt,
en það átti ekki að rísa fyrr en á næsta ári. Eru nú nær allar íbúðirnar 30 að tölu
seldar í þessum þremur húsum.