Gámasvæðið

Eins og íbúar hafa orðið varir við, þá hefur sveitarfélagið boðið upp þá þjónustu að vera með gáma fyrir flokkaðan úrgang á svæði við höfnina. Því miður þá hefur þetta ekki gengið sem skyldi þrátt fyrir ítrekaðar áminningar og aðvaranir. Það eru alltaf einhverjir sem ekki geta farið eftir tilmælum. Er nú svo komið að gámarnir verða fluttir brott af svæðinu þriðjudaginn eftir verslunarmannahelgi þ.e. 6. ágúst. Svæðið verður hreinsað, jafnað og lokað af með blómakerjum og keðjum. Það verður auglýst síðar hvenær gámarnir koma aftur.