Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar

Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar var haldinn sl. mánudag, 16. júní. Ingþór Guðmundsson var kjörinn forseti bæjarstjórnar og Bergur Álfþórsson formaður bæjarráðs. Einnig var kosið í nefndir, stjórnir og ráð bæði innan sveitarfélagsins og svo þær sem sveitarfélagið á aðild að. Ásgeir Eiríksson var ráðinn áfram sem bæjarstjóri kjörtímabilið 2014-2018 með samþykki allra bæjarstjórnarmeðlima.