Fundarröð um ferðamál á Reykjanesi Vogar: Miðvikudagur 7. febrúar kl. 12:05 í fundarsal bæjarstjórnar, Iðndal 2

Fundarröð um ferðamál á Reykjanesi
Markaðsstofa Reykjaness og Reykjanes UNESCO Global Geopark boða til opinna funda um ferðamál á Reykjanesi í samstarfi við sveitarfélögin á svæðinu. Fundirnir verða sem hér segir:
Sandgerði: Mánudagur 5. febrúar kl. 17:15 í Vörðunni
Reykjanesbær: Mánudagur 5. febrúar kl. 20:00 í Hljómahöll
Vogar: Miðvikudagur 7. febrúar kl. 12:05 í fundarsal bæjarstjórnar, Iðndal 2
Garður: Fimmtudagur 8. febrúar kl. 12:05 á Lighthouse Inn
Grindavík: Fimmtudagur 8. febrúar kl. 17:15 í Gjánni
Ætlunin er að ræða stöðu ferðaþjónustunnar á Reykjanesi sem og að skoða þau verkefni sem eru framundan í þessari vaxandi atvinnugrein. Kynnt verður starfsemi Markaðsstofu Reykjaness, Reykjanes UNESCO Global Geopark og stefna sveitarfélaganna í ferðamálum.
Að loknum stuttum kynningum verður opnað fyrir fyrirspurnir og almennar umræður. Fundirnir eru öllum opnir.