Fuglalíf við Vogatjörn.

Fuglabaðstaðurinn Vogatjörn hefur verið fjölsóttur í haust, ekki síst af hettumáfum. Þegar þeir fljúga upp geta þeir speglað sig í æði stórum spegli. Þeir hafa nú tekið ofan hettuna, enda komið haust og innan skamms halda þeir allir til suðlægri landa til vetursetu.