Frístundastyrkur Sveitarfélagsins Voga 2018

Frestur til að sækja um frístundastyrk fyrir vorönn 2018 er til 1. febrúar nk.
Greitt verður 15. febrúar 2018.

Skilyrði fyrir veitingu styrkja samkvæmt Frístundakortinu
• Að iðkandi/styrkþegi eigi lögheimili í Sveitarfélaginu Vogum.
• Að styrkþegi sé á aldrinum 16 ára og yngri miðað við fæðingarár. (fæð.ár 2002 eða yngra)
• Að um skipulagt starf/kennslu/þjálfun sé að ræða í a.m.k. 10 vikur á önn, innan sem utan sv.félagsins.
• Styrkur getur aldrei orðið hærri en þátttöku- eða æfingagjald viðkomandi íþrótta- eða tómstundagreinar.

Styrkurinn er allt að 25.000 kr. á ári.

Hægt að senda inn umsókn ásamt fylgigögnum í gegnum Íbúagátt Sveitarfélagsins Voga.