Frestur til að sækja um frístundastyrk fyrir haustönn 2016 er til 1. október nk.
Greitt verður 15. október 2016.
Skilyrði fyrir veitingu styrkja samkvæmt Frístundakortinu
• Að iðkandi/styrkþegi eigi lögheimili í Sveitarfélaginu Vogum.
• Að styrkþegi sé á aldrinum 16 ára og yngri miðað við fæðingarár. (fæð.ár 1999 eða yngra)
• Að um skipulagt starf/kennslu/þjálfun sé að ræða í a.m.k. 10 vikur á önn, innan sem utan sv.félagsins.
• Styrkur getur aldrei orðið hærri en þátttöku- eða æfingagjald viðkomandi íþrótta- eða tómstundagreinar.
Styrkurinn er allt að 10.500 kr. á ári, ath. þeir sem nýttu allan styrkinn á vorönn 2016 geta sótt um á næsta ári 2017.
Athugið! Hægt er að senda inn umsókn ásamt fylgigögnum í gegnum Íbúagátt Sveitarfélagsins Voga.
Umsóknareyðublað til útprentunar má nálgast hér, hægt er að skila umsókn ásamt frumriti af kvittun fyrir þátttöku- og æfingagjöldum á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga að Iðndal 2.