Frístundakort haustönn 2015

Frestur til að sækja um frístundastyrk fyrir haustönn 2015 er til 1. október nk.
Greitt verður 15. október 2015.

Skilyrði fyrir veitingu styrkja samkvæmt Frístundakortinu
• Að iðkandi/styrkþegi eigi lögheimili í Sveitarfélaginu Vogum.
• Að styrkþegi sé á aldrinum 16 ára og yngri miðað við fæðingarár. (fæð.ár 1999 eða yngra)
• Að um skipulagt starf/kennslu/þjálfun sé að ræða í a.m.k. 10 vikur á önn, innan sem utan sv.félagsins.
• Styrkur getur aldrei orðið hærri en þátttöku- eða æfingagjald viðkomandi íþrótta- eða tómstundagreinar.

Styrkurinn er allt að 10.500 kr. á ári, ath. þeir sem nýttu allan styrkinn á vorönn 2015 geta sótt um á næsta ári 2016.

Umsókn og frumriti af reikningi skal skila á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga að Iðndal 2.

Umsóknareyðublað má nálgast hér

Reglur um frístundakort