Frístund og heimanám

Umsókn um frístund og heimanám.

Skráning í frístund og heimanám fram á rafrænni íbúagátt Sveitarfélagsins Voga. 
Umsóknir skulu berast fyrir  30. ágúst 2018.
Frístundaskóli og heimanám er í boði fyrir nemendur í 1.-4. bekk eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur og starfar hann frá kl: 13:00 til 17:00 (til 16:00 á föstudögum)
Gjald er innheimt fyrirfram. Gjalddagi er 1. hvers mánaðar og eindagi 14 dögum síðar.
Uppsagnarfrestur er hálfur mánuður og skal uppsögn berast frá íbúagátt eigi síðar en 15. hvers mánaðar.
Samkvæmt verklagsreglum fyrir starfsemi Frístundar og gjaldskrá Sveitarfélagsins Voga verður dvöl sagt upp við þriggja mánaða vanskil, með hálfs mánaðar fyrirvara.
Vakin er athygli á því að vanskil valkvæðar þjónustu er samræmd og séu forráðamenn í vanskilum með aðra þjónustu á vegum Sveitarfélagsins Voga verður dvöl einnig sagt upp þó skuldin sé ekki vegna viðkomandi barns.

Gjaldskrá 2018 má sjá hér

Reikninga vegna frístunda- og heimanámsgjalda má einnig sjá á íbúagátt, undir flipanum Gjöld.

Umsjónarmaður Frístundaskólans er Jóhanna Lovísa Jóhannsdóttir
Aðrir starfsmenn eru Oktavía Ragnarsdóttir og Helena Richter.
Símanúmer Frístundar: 440-6224 frá 12:30 til 17:00 (hanna@vogar.is)
Símanúmer bæjarskrifstofu: 440-6200  (skrifstofa@vogar.is )