Fréttir frá Skólakór Stóru-Vogaskóla

Það hefur margt skemmtilegt verið gert hjá nýstofnuðum skólakór Stóru-Vogaskóla á þessu skólaári.
Fyrir stuttu var sönghelgi hjá þeim í íþróttahöllinni í Vogum og tókum við upp okkar fyrsta tónlistarmyndband við franska lagið “Ó Champs-Elysees” eftir söngvarann fræga Joe Dassin við íslenska texta eftir Skagfirðinginn Hilmi Jóhannesson.
Myndbandið tók upp ljósmyndarinn Jón R. Hilmarsson og kórstjórn var í höndum Alexöndru Chernyshovu, tónmenntakennara Stóru-Vogaskóla, sópransöngkonu og tónskáld.

Með miklu stolti þá segi ég frá flottri frammistöðu kórsins í þeirra fyrsta verkefni og það var ekki á minnsta sviðinu á Íslandi, frumsýning á óperuballet fyrir börn “Ævintýrið um norðurljósin” í Norðurljósasal Hörpu 2. des 2017. Verkið er eftir mægðurnar Alexöndru Chernyshovu sem samdi tónlistina og sá um leikstjórnina og Evgeniu Chernyshovu sem samdi söguna. Kórinn söng m.a. á rússnesku í óperunni.

Kórinn hefur komið fram á Menningarhátíð í Vogum, Kirkjuhátíðardegi í Vogum, Upplestrarkeppn í Stóru-Vogaskóla og fleiri verkefnum innan skólans.

Við óskum kórnum til hamingju með fyrsta tónlistarmyndbandið sem hægt er að sjá hér