Fréttatilkynning. Styrkir til Atvinnumála kvenna

Fréttatilkynning
50. milljónir til úthlutunar og aukin þjónusta

Nú hefur Vinnumálastofnun/ Félagsmálaráðuneytið auglýst styrki til Atvinnumála kvenna lausa til umsóknar og er umsóknarfrestur til 28.september næstkomandi.  Til umráða nú eru 50 milljónir sem að verður úthlutað til kvenna sem hafa góðar viðskiptahugmyndir.
Að þessu sinni verður hægt að sækja um styrki til gerðar viðskiptaáætlana, markaðs- og kynningarmála, þróunarvinnu af ýmsu tagi og hönnunar. Nýnæmi  í styrkveitingum að þessu sinni er að konur sem hafa fullmótaða viðskiptaáætlun geta sótt um styrk vegna launakostnaðar í allt að 6 mánuði.  Ekki eru veittir styrkir til stærri fjárfestinga í aðstöðu, tækjum og búnaði.
Forsendur þess að umsóknir séu styrkhæfar eru að verkefnið sé í eigu konu/kvenna og stjórnað af konu, að það feli í sér atvinnusköpun til frambúðar og feli í sér nýnæmi eða nýsköpun og að viðskiptahugmynd sé vel útfærð. 

Auk styrkja sem úthlutað verður þjónusta  við konur sem hafa hug á stofnun fyrirtækja aukin til muna. Í því skyni hefur verið sett upp heimasíða þar sem að hægt verður að fá ráðgjöf og fræðslu auk þess sem sett verður upp  samfélagsvefur kvenna í atvinnurekstri. 
Á síðunni verður einnig hægt að nálgast margvíslegar upplýsingar um stofnun og rekstur fyrirtækja auk annara hagnýtra upplýsinga en slóðin á síðuna er www.atvinnumalkvenna.is 
 Styrkir til atvinnumála kvenna eiga sér sögu frá því árið 1991 en þá ákvað þáverandi og núverandi félagsmálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir að veita styrki til kvenna með góðar viðskiptahugmyndir.

Síðan þá hafa styrkir verið auglýstir árlega og hafa 327 konur fengið styrki til að vinna að viðskiptahugmyndum sínum sem margar hverjar hafa orðið að fyrirtækjum í rekstri í dag.
Á síðasta ári var ákveðið að auka við fjármagn til þessara styrkja og eins og fyrr segir eru á þessu ári 50.milljónir til úthlutunar auk þess sem að nú hefur verið ráðinn starfsmaður til að sinna sjóðnum ásamt ráðgjöf og heimasíðu.   Starfsmaðurinn heitir Ásdís Guðmundsdóttir og hefur hún starfsaðstöðu á skrifstofu Vinnumálastofnunar á Sauðárkróki þar sem hún sinnir þjónustu við konur um allt land.

Hámarksstyrkur í ár er kr. 2.000.000 en ekki eru veittir styrkir sem eru lægri en 300.000. Umsóknarfrestur er til 28.september og sækja skal  rafrænt um á heimasíðunni  www.atvinnumalkvenna.is     

Kynningarfundir um styrkina og  þjónustu við konur sem hyggja á atvinnurekstur verða í september á eftirtöldum stöðum;
Blönduósi þann 12.september við Árbakkann kl. 12.00-13.00
Akureyri þann 15.september á Friðriki 5 kl. 12.00-13.00
Húsavík þann 19.september á Gamla Bauk kl. 12.00-13.00
Reyðarfirði þann 16.september á Fjarðarhóteli kl. 12.00-13.00
Höfn í Hornafirði þann 16.september í Nýheimum kl. 17.00-18.00
Hvolsvelli þann 22.september á Hótel Hvolsvelli kl. 12.00-13. 00
Reykjanesbæ þann 22.september á Flughótelinu kl. 20.00 -21.00
Reykjavík þann 23. september á Kjarvalsstöðum kl. 12.00-13.00 
Borgarnesi þann 23 september á Hótel Hamri kl. 20.00-21.00
Patreksfirði þann 24.september á Sjóræningjasetrinu kl. 12.00 -13.00
 Ísafirði þann 24.september í Edinborgarhúsinu kl. 20.00-21.00
Fundirnir eru haldnir í samvinnu við Impru – Nýsköpunarmiðstöð  og Atvinnuþróunarfélög á hverjum stað en auk kynningar á styrkjum  til atvinnumála kvenna og þjónustu mun athafnakona af hverju svæði vera með innlegg, Sigríður Elín Þórðardóttir, sérfræðingur á Byggðastofnun mun fjalla um rannsóknir sínar á atvinnurekstri kvenna á Íslandi og Atvinnuþróunarfélögin og Impra munu kynna þjónustu sína. 
Dagskrá verður auglýst nánar á hverjum stað og á heimasíðu verkefnisins  www.atvinnumalkvenna.is