Fréttabréf á vefnum

Nú gefst lesendum þessa vefjar kostur á því að lesa Fréttabréf Vatnsleysustrandarhrepps á heimasíðunni. Búið er að setja inn öll Fréttablöð frá upphafi útgáfunnar. Blaðið kemur að meðaltali út tíu sinnum á ári, einu sinni í mánuði að frádregnum sumarmánuðunum.Farið í möppuna "Um Vatnsleysustrandarhrepp" og þar er "Fréttabréf" og viðkomandi ár og síðan er tölublað valið.