Frétt frá Þrótti

Getraunadeild Þróttar var með brönz síðasta laugardag. Heppnaðist brönzinn gríðarlega vel og var vel mætt. Mikil og góð stemmning hefur verið í getraunastarfi félagsins í vetur. Eru 46 manns að taka þátt í hópleiknum og ekki má gleyma öllum þeim sem mæta til að sína sig og sjá aðra. 

 

Þróttarar fóru á stað með þetta haustið 2012 og hefur verið fjölgandi í hópnum síðan þá. Markmiðið var að efla félagsandann og fá fólk til að mæta í nafni félagsins. Endurnýja gömul kynni og gefa félagsmönnum tækifæri á að kynnast nýjum félögum. Þangað eru allir velkomnir í kaffi, líka þeir sem ekki tippa.